Humarsúpa
Reyktur & grafinn lax
Blandaðir sjávarréttir með grænmeti
Steinbíts pate
Reyktur hvalur
Risa rækjur mexican style
Karrý og marmelaði síld
Hangikjöt
Hamborgarahryggur
Villibráðar pate
Gæsabringa
Svartfugl
Pinnasteiktur skötuselur og
risarækjur með grænmeti
Hreindýra kjötbollur
Sjávarréttasósa
Tiryaki sósa
Mango (jalapeno) sósa
Grænar baunir
Rauðkál
Villi salat
Brúnaðar kartöflur
Hvítar kartöflur
Kartöflumús
Brún sósa
Jafningur
Appelsínusósa
Villisveppasósa
Laufabrauð
Ís
Tiramisu
Betra er að panta borð fyrirfram
Takk fyrir
Humarskipið er glæsilegur veitingastaður við höfnina í Reykjavík, í hjarta borgarinnar. Veitingastaðurinn er í gömlu skipi sem búið er að gera upp og lagfæra með það fyrir augum að skapa notalegt og skemmtilegt umhverfi fyrir sjávarréttarveitingastað sem leggur áherslu á humarrétti.
Við gömlu höfnina er sérstakt andrúmsloft innan um gamlar og nýjar byggingar rétt við smábátahöfn og athafnalíf. Miklar framkvæmdir og lagfæringar hafa átt sér stað á umhverfi Humarskipsins og er þeim hvergi nærri lokið.
Þrátt fyrir áherslu á humarrétti erum við með margt annað áhugavert á matseðlinum okkar. Þá erum við með sérstakan barnamatseðil þegar fjölskyldan öll vill koma saman og njóta nærveru við sjóinn og smakka á sjávarfangi.
Hvalaskoðun er áhugaverð og skemmtilega hugmynd fyrir alla sem vilja njóta góðrar ferðaþjónustu. Í hvalaskoðunarferðum er boðið uppá sjóstangaveiði sem margir hafa prófað og kryddað annars skemmtilega skoðunarferð. Margir ná þannig að „veiða í soðið“ eins og það hét í þá gömlu góðu daga. Til þess að bæta um betur og gera hvalaskoðendum mögulegt að snæða veiðina bjóðumst við til að elda veiðina og hún borinn fram með kartöflum, hrísgrjónum, salati & sósu.
Fyrir hina sem ekkert veiða eða kæra sig ekki um að prófa sjóstangaveiði höfum við fjölbreytilegt úrval sjávarrétta. Einnig bjóðum við upp á okkar frábæra íslenska lambakjöt og einnig nautakjöt. Þannig ættu allir að geta farið saddir og glaðir heim eftir vel heppnaða hvalaskoðun og sjóstangarveiði.
En það eru humarréttirnir sem við höfum sérhæft okkur í og erum ófeimin við að mæla með fyrir hvern sem er. Ekki aðeins fyrir ferðamenn og hvalaskoðunarfólk, heldur alla sem vilja koma í miðbæinn og snæða sjávarfang á báti með angan hafsins fyrir vitum sér og útsýni yfir höfnina.
Grillaður humar er matur sem bráðnar á munninum og ærir bragðlaukana þegar hann syndir í Pinot Grigio frá Fetzer Valley Oaks. Eitthvað sem allir verða að smakka. Ekki er verra að fá sér humarsúpu í forrétt til að undirbúa þannig bragðlaukana. Hvar er huggulegra að snæða þessar yndislegu kræsingar en einmitt á báti við sjóinn?
Við höfum líka valið öll okkar vín af kostgæfni til að falla vel að smekk viðskiptavina og matseðlinum sem við leggjum metnað í að framreiða með besta fáanlega hráefni. Hvort sem um er að ræða Chardonnay eða Sauvignon Blanc. Það er alltaf frábær stemming á Humarskipinu hvort sem er á sumarbjörtum kvöldum eða dimmum vetrarkvöldum með rómantísku kertaljósi.